Reunion á föstudag

Jæja þá fer að líða að þessu hjá okkur.

Þar sem enginn tók undir partyhald nema Halli (legg til að allir bjóði Halla upp á bjór á föstudaginn, ) þá var ákveðið að fella þann lið niður.
Þannig að það er mæting á föstudaginn í Húnabúð í skeifunni, 3ja hæð fyrir ofan Fönn, kl 8. Tekið verður á móti ykkur með fordrykk. Léttur matur verður svo á boðstólum klukkan 8:30. Allir að vera mættir þá. Munið að koma með ykkar eigin drykkjarföng, áfeng og óáfeng.
Þeir sem eiga góða party diska, endilega koma með þá. Við ætlum svo að vera með karton niður frá fyrir þá sem vilja koma með flottar myndir frá Öldó árunum. Þið takið svo bara myndirnar með ykkur heim aftur, eða nálgist þær hjá okkur seinna. Það kom einnig góð hugmynd frá einhverjum að þeir sem eru búnir að eignast barn, já eða börn, ættu að koma með myndir af sínum afkvæmum og sýna.

Held að það sé ekki meira í bili.
Sjáumst á föstudaginn!!!

Auglýsum eftir tónlist…

nema þið viljið hlusta á Bylgjuna allt kvöldið.

Endilega skrifið diska og komið með. Megið koma með I-pod en þá er hann líka á ykkar ábyrgð. Tónlistin sem við auglýsum eftir er sjálfsögðu frá gelgjuárunum.
Okkur finnst reyndar að diskóráðið frá þessum árum ætti að sjá um þessi mál. En í ráðinu voru (´97-´98):

Hrund Ýr, yfirplötusnúður
Díana Dögg Hreinsdóttir
Guðrún Breiðfjörð Pétursdóttir
Guðrún Helga Jónsdóttir
Haraldur Arnarson
Ólafur Már Ólafsson
Sandra Þóroddsdóttir
Sigríður Dóra Héðinsdóttir
Sigríður Ósk Fanndal

Spurning að yfir dj-inn hói sínu fólki saman 🙂

Kv Auður

Knús Hrund, get ekki hætt að stríða þér á þessu enda er þetta það allra fyndnasta!!

Auglýsum eftir fólki

Við höfum enn ekki haft uppá á fjölda fólks.
Berglind
Halli A
Ísak
Maggi
Marteinn
Siggi S

Ef einhver er í bandi við þau, eða veit símanúmer, netfang, láta okkur/þau vita. Það er algjört möst að allir viti nú af þessu.

Svo eru sumir sem hafa ekkert látið heyra í sér þrátt fyrir fjölda tölvupósta. Þið sem hafið aldrei svarað okkur, gerið það núna svo við vitum að þið eruð amk að fá póstana frá okkur 🙂

Jæja…

Nú er rétt rúm vika í endurfundina okkar góðu.

Við erum ekki alveg nógu ánægðar með innheimtuna hjá okkur.  Set því reikningsnúmerið hér líka og vona að peningarnir fari að streyma inn.

Munið þetta er fyrir salnum, matunum og starfmanni. Borga inn á reikning:0315-26-8209 kt: 260982 5759 (sandra). 4000krónur.

Verið duglega að láta í ykkur heyra og kíkja hér inn, verðum örgugglega duglegar að pósta síðustu dagana.

Kv Auður ritari

Borga, borga!!

Hæhæ allir!

 Nú er komið að skemmtilega hlutanum, að rukka fólkið 🙂
Prísinn er 4000kr , kíkið á meilinn ykkar til að fá reikningnúmer.  Þið hafið frest til 5.janúar!!

Er  enginn annar en Halli sem býður fram heimili sitt í fyrirparty??? Annars þarf Halli að taka á móti okkur öllum!!!  🙂

Svo megi þið fara að vinna í því að skanna myndir og senda okkur- helst þær allra hallærislegu 🙂

Hafið það sem allra best yfir hátíðarnar,
Reunion nefnd

um Reunion

Hæhæ

Flott að sjá hvað margir eru búnir að skrifa um sjálfan sig. Sparkið frá Helgu Möggu greinilega að skila sér 🙂

En sum sé þá ætlum við að hittast föstudaginn 11. janúar. Við erum búnar að panta sal í Skeifunni undir okkur en við erum samt að pæla að hafa bekkjarparty áður en við mætum í salinn.  Þá erum við að hugsa um bekkina eins og þeir voru í 8.bekk, s.s. 8. AE, 8.SH og 8.KJ.  Þeir sema voru ekki í 8. bekk velja sér bara party til að mæta í 🙂 Við ákváðum þetta til að hrista okkur enn betur saman, rifja upp bekkjarstemmarann og svo er líka auðveldara að mæta á svæðið og hitta gamla bekkinn og mæta með honum á svæðið. Eru þið ekki sammála?? Endilega kommentið á þetta.
En okkur vantar samt partýhaldara 🙂  Þeir sem búa nálægt Skeifunni ættu að sjálfsögðu að bjóða sig fram. Partýið er hugsað frá ca 18:30 til 20:00.
Við erum að vinna í því að redda bekkjarlistunum frá 8. bekk. Við setjum hann svo upp hér.
Svo erum við búnar að panta mat frá veisluþjónustu, þetta verða svona smáréttir. Það sem verður í boði er m.a. reyktur lax, lambalundir, sjávarréttapaté, kjúklingur og fleira.

Varðandi verð, þá er það ekki alveg komið á hreint því við erum ekki með fjöldan á hreinu. En við gerum ráð fyrir því að allir sem hafa svarað okkur mæti, nema þeir hafi tekið annað fram. Látið okkur því vita ef þið komist ekki!!Í næstu viku sendum við ykkur verð og bankanúmer því við þurfum að borga salinn í desember. Það sem er innifalið í verðinu er salurinn , matur og kona*.

Látið heyra í ykkur

Kv Auður

*Starfsmaður sem fylgir salnum, hugsuðu þið eitthvað annað??

Fundur á þriðjudaginn

Ætlum að hittast á þriðjudaginn á Cafe Milanó í skeifunni kl 20:00 og ræða málin varðandi endurfundina. Erum ekki enn búin að ná á alla, hringjum í restina í vikunni þegar við erum búin að redda símanúmerum.
Endilega komið og hittið okkur og hjálpið okkur við undirbúninginn. 

Sjáumst vonandi á þriðjudaginn ( megið alveg láta vita í comments hvort þið komið en það má samt alveg droppa inn surprise)

Endurfundir 11. janúar 2008

Jæja, þá er bara komið að þessu!! Reunion verður haldið föstudaginn 11. janúar 2008. En þá eru liðin tæp 10 ár frá því við kvöddum skólann okkar. Við erum búin að neggla sal handa okkur og er pælingin að hafa léttar veitingar. En þið þurfið sjálf að koma með öll drykkjarföng, áfengt og óáfengt.  Verðið miðast af fjöldanum sem mætir en það ætti ekki að fara yfir 4000kr. Endilega látið okkur vita hvort þið ætlið að mæta eða ekki, hér í commentum eða senda á okkur tölvupóst oldusel08@gmail.com.

Hér til vinstri er svo spurningalisti fyrir ykkur að fylla út og senda okkur. Þetta er bara svona smá update af ykkur og ykkar högum. Við setjum þetta svo hér á netið þannig að allir geta lesið.

Vona að þið takið vel í þetta,

kveðja
Auður

P.s. þetta er endanleg ákvörðun- dagsetningu verður ekki breytt!!! 🙂